Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 380/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 380/2022

Miðvikudaginn 31. ágúst 2022

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. júlí 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 25. maí 2022, á umsókn um styrk að fjárhæð 451.129 kr. til greiðslu tannlæknakostnaðar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 2. maí 2022, sótti kærandi um styrk hjá Reykjavíkurborg að fjárhæð 451.129 kr. til greiðslu tannlæknakostnaðar. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 5. maí 2022, með þeim rökum að hún samræmdist ekki 24. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti þá synjun með ákvörðun, dags. 25. maí 2022.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 26. júlí 2022. Með bréfi, dags. 28. júlí 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 11. ágúst 2022, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. ágúst 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa sótt um fjárhagsaðstoð vegna nauðsynlegrar tannlæknaaðgerðar en bæði sé um dýra og áríðandi meðferð að ræða. Kærandi sé öryrki og hafi lítil fjárráð.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi þiggi örorkulífeyri sér til framfærslu og búi í félagslegu leiguhúsnæði á vegum Reykjavíkurborgar. Hann hafi þegið stuðning frá miðstöðvum Reykjavíkurborgar í nokkur ár. Kæranda vanti framtönn og hafi óskað eftir aðstoð Reykjavíkurborgar við að geiða þann kostnað. Kærandi hafi leitað til tannlæknis og fengið kostnaðaráætlun, dags. 26. apríl 2022. Samkvæmt kostnaðaráætlun tannlæknis hljóði kostnaðaráætlun upp á 451.129 kr. en samkvæmt framangreindri áætlun muni Tryggingastofnun ríkisins ekki taka þátt í umræddum kostnaði.

Þann 2. maí 2022 hafi kærandi sótt um styrk til greiðslu tannlæknakostnaðar að upphæð 451.129 kr. samkvæmt 24. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Umsókn kæranda hafi verið synjað af starfsmanni þjónustumiðstöðvar með bréfi, dags. 5. maí 2022. Kærandi hafi skotið þeirri ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 25. maí 2022 og staðfest synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar.

Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi tekið gildi 1. apríl 2021 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs þann 24. febrúar 2021, á fundi borgarráðs þann 4. mars 2021 og á fundi borgarstjórnar þann 16. mars 2021. Samkvæmt 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar verði öll skilyrði ákvæðisins að vera uppfyllt svo að heimilt sé að veita lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika. Kæranda hafi verið synjað um styrk samkvæmt umræddu ákvæði þar sem hann hafi ekki uppfyllt skilyrði a., b. og d. liða ákvæðisins.

Kærandi hafi ekki fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg undanfarna sex mánuði eða lengur, sbr. a. lið 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð, en hann þiggi örorkulífeyri sér til framfærslu og tekjur kæranda séu töluvert yfir viðmiðunarmörkum fjárhagsaðstoðar frá Reykjavíkurborg. Ekki sé fyrirliggjandi staðfesting þess efnis að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana, sbr. b. lið 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð. Fyrir liggi yfirlit starfsmanns velferðarsviðs um fjárhagssstöðu umsækjanda en í greinargerð sem rituð hafi verið af hálfu ráðgjafa Vesturmiðstöðvar til áfrýjunarnefndar velferðarsviðs komi fram hver fjárhagsstaða umsækjanda sé. Ekki liggi fyrir upplýsingar um það hvernig styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma sé litið, sbr. d. lið 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð. Samkvæmt framangreindri greinargerð skuldi kærandi Ríkisskattstjóra 7.918.610 kr. og því hefði umræddur styrkur ekki breytt skuldastöðu kæranda. Kærandi uppfylli e. lið 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi einstaklingsáætlun þar sem hann sé með áfangasamning í gildi vegna úthlutunar í félagslegt leiguhúsnæði.

Tannlækningar falli ekki að reglum Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð, umfram það sem kveðið sé á um í a. lið 20. gr. reglnanna þar sem um heilbrigðiskostnað sé að ræða. Aðstoð vegna heilbrigðiskostnaðar sé ekki hluti af félagsþjónustu sveitarfélaga heldur á ábyrgð ríkisins, sbr. lög nr. 112/2008 um sjúkratryggingar. Heilbrigðiskostnaður falli því ekki undir reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg og þar af leiðandi ekki undir 24. gr. reglnanna. Þá hafi einnig verið litið til þess ekki sé um að ræða nauðsynlegar tannlækningar.

Samkvæmt framansögðu sé ljóst að ákvörðun velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg né öðrum ákvæðum þeirra reglna eða ákvæðum laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um styrk að fjárhæð 451.129 kr. til greiðslu tannlæknakostnaðar.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Samkvæmt því ákvæði er heimilt að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk að hámarki 300.000 kr. vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:

a. Umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur.

b. Staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana.

c. Fyrir liggi yfirlit starfsmanns velferðarsviðs eða umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á.

d. Fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni styrkja félagslega stöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið.

e. Fyrir liggi einstaklingsáætlun og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu frá Reykjavíkurborg síðastliðna sex mánuði eða lengur þegar umsókn um styrk vegna sérstakra erfiðleika barst Reykjavíkurborg. Þegar af þeirri ástæðu uppfyllti kærandi ekki skilyrði 24. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð en líkt og að framan greinir þurfa öll skilyrði ákvæðisins að vera uppfyllt til að eiga rétt á styrk vegna sérstakra erfiðleika.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 25. maí 2022, um synjun á umsókn A um styrk að fjárhæð 451.129 kr. til greiðslu tannlæknakostnaðar, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum